Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Bjart er yfir Betlehem

1. Bjart er yfir Betlehem
blikar jólastjarna.
Stjarnan mín og stjarnan þín,
stjarna allra barna.
Var hún áður vitringum
vegaljósið skæra.
Barn í jötu borið var,
barnið ljúfa kæra.

2. Víða höfðu vitringar
vegi kannað hljóðir
fundið sínum ferðum á
fjöldamargar þjóðir.
Barst þeim allt frá Betlehem
birtan undur skæra.
Barn í jötu borið var,
barnið ljúfa kæra.

3. Barni gjafir báru þeir.
Blítt þá englar sungu.
Lausnaranum lýstu þeir,
lofgjörð drottni sungu.
Bjart er yfir Betlehem
blikar jólastjarna,
stjarnan mín og stjarnan þín
stjarna allra barna.

Ingólfur Jónsson frá Prestbakka

Hljóðdæmi