Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Blessunardaggir lát drjúpa

1. Blessunardaggir lát drjúpa,
dynja lát regn yfir storð.
Jarðveginn gef oss hinn gljúpa,
Guð, er vér heyrum þitt orð.

Kór: Blessaðar blessunardaggir
berist oss, Drottinn,  frá þér.
Dropar af náð eru' að drjúpa,
daggir og regn þráum vér.

2. Blessunardaggir lát drjúpa,
dauðanum hríf þú oss úr.
Send yfir dalina djúpa
dýrðlega vakningar skúr.

3. Blessunardaggir lát drjúpa,
Drottinn ó send oss þær nú.
Faðmandi kross þinn að krjúpa
kenn oss í lifandi trú.

Daniel Whittle (El. Nathan) - Lárus Halldórsson

Hljóðdæmi