Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Drottinn er skjól

1. Drottinn er skjól mitt, ég skelfast þarf eigi,
skyggi með stormum um ævinnar hjarn.
Honum ég treysti á hérvistarvegi,
hann hefir frelsað mig, ég er hans barn.

Kór: :,: Drottinn er skjól. :,:
Drottinn mun geyma sína.
Drottinn er öruggt eilífðarskjól,
öruggt hann geymir sína.

2. Drottinn er skjól mitt og athvarfið eina,
ó, þangað stefnir öll hjarta míns þrá!
Ljúfust er hvíld þar og lækningin meina,
lífgandi huggun ef sorgirnar þjá.

3. Drottinn er skjól mitt, það dýrmætast hæli,
dvalarstað kýs ég uns endar mitt stríð.
Það er sá friðlýsti sólheimur sæli,
sem mér er búinn um eilífa tíð.

W. O. Cushing – Þýðandi óþekktur

Hljóðdæmi