Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Guð minn ég lofa

1. Guð minn ég lofa þó gisti í kofa,
gullið og silfrið mér eigi sé veitt.
Indæl mín bíður, að afloknu stríði
íbúð með gulli og steinum skreytt.

Kór: Ég á mér bústað á himnanna hæðum
hrörnun ei þekkist við Guðs dýrðarstól.
Allir þar mettast af hans eilífu gæðum
aldrei til viðar þar hnígur sól.

2. Reynd var með árum oft trúin með tárum,
tíðum minn koddi, sem Jakobs er steinn.
Hásalur fríður, á himni mín bíður,
hér niðri´ á jörðu ég á ei neinn.

3. Hygg, ei ég kvíði, í hættum og stríði
hræðist ei fátækt né bugast af eymd.
Auðlegð míns hjarta er ættlandið bjarta
er mér þar kórónan fögur geymd.

Ira Stanphill  - Sigríður Halldórsdóttir.

Hljóðdæmi