Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Í dag er glatt

1. Í dag er glatt í döprum hjörtum,
því Drottins ljóma jól.
Í niðamyrkrum nætur svörtum
upp náðar rennur sól.
Er vetrar geisar stormur stríður,
þá stendur hjá oss friðarengill blíður,
og þegar ljósið dagsins dvín,
:,: oss Drottins birta kringum skín. :,:

2. Oss öllum mikinn fögnuð flytur
sá friðar engill skær:
Sá Guð er hæst á himni situr,
er hér á jörð oss nær.
Sá Guð er ræður himni háum,
hann hvílir nú í dýrastalli lágum,
sá Guð, er öll á himins hnoss,
:,: varð hold á jörð og býr með oss. :,:

3. Guðs lýður vertu' ei lengur hræddur,
og lát af harmi' og sorg.
Í dag er Kristur Drottinn fæddur
í Davíðs helgu borg.
Hann fjötrum reifa fast er vafinn,
í frelsi barna Guðs svo þú sért hafinn.
Hann þína tötra tók á sig,
:,: að tign Guðs dýrðar skrýði þig. :,:

4. Á himni næturljósin ljóma
svo ljúft og stillt og rótt,
og unaðsraddir engla hljóma
þar uppi' um helga nótt.
Ó, hvað mun dýrðin himins þýða,
og hvað mun syngja englaraustin blíða?
Um dýrð Guðs föður, frið á jörð
:,: og föðurást á barnahjörð. :,:

5. Ó, dýrð sé þér í hæstum hæðum,
er hingað komst á jörð.
Á meðan lifir líf í æðum,
þig lofar öll þín hjörð.
Á meðan tungan má sig hræra,
á meðan hjartað nokkuð kann sig bæra,
hvert andartak, hvert æðarslag  
:,: Guðs engla syngi dýrðarlag. :,:

Valdimar  Briem.

Hljóðdæmi