Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Þegar Drottins lúður hljómar

1. Þegar Drottins lúður hljómar
og þá dagur fer í hönd,
þegar dýrðarmorgunn ljómar eilífðar,
þegar Guð með nafni kallar
allt sitt fólk á friðarströnd,
sem hans frelsi meðtók, - einnig verð ég þar!

Kór: :,: Þegar Drottinn nafn mitt nefnir :,:
:,: þegar Drottinn nafn mitt nefnir :,: verð ég þar!

2. Upp þeir sælir aftur rísa,
sem í Drottni dóu´ á jörð,
þegar dýrðarmorgunn ljómar eilífðar,
þegar Drottinn Guð með nafnakalli
safnar sinni hjörð
inn í sólarlandið, - einnig verð ég þar!

3. Vitnum hér um Jesú kærleik
þar til næturdimman dvín,
þar til dýrðarmorgunn ljómar eilífðar.
Þegar börnin sín með nafni kallar
góður Guð til sín,
ó, hve gott er þá og sælt að vera þar!

James  M. Black - Sigurbjörn Sveinsson.

Hljóðdæmi