Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Þegar ég leystur verð þrautunum frá

1. Þegar ég leystur verð þrautunum frá,
þegar ég sólfagra landinu á
lifi og verð mínum lausnara hjá,
það verður dásamleg dýrð handa mér.

Kór: Dásöm það er :,: dýrð handa mér. :,:
Er ég skal fá Jesú auglit að sjá,
það verður dásamleg dýrð handa mér.

2. Og þegar hann, er mig elskar svo heitt,
indælan stað mér á himni´ hefir veitt,
svo að hans ásjónu´ ég augum fæ leitt
það verður dásamleg dýrð handa mér.

3. Ástvini sé ég, er unni ég hér,
árstraumar fagnaðar berast að mér.
Blessaði frelsari, brosið frá þér,
það verður dásamleg dýrð handa mér.

C. H. Gabriel - Lárus Halldórsson.

Hljóðdæmi