?

Alfanámskeið

Alfa er 10 vikna námskeið sem fjallar um kristna trú á

aðgengilegan og skemmtilegan hátt þar sem tækifæri gefst til

að skoða stóru spurningar lífsins út frá kristnu sjónarhorni.


Hist er einu sinni í viku í u.þ.b. 2  klukkustundir í senn.


Þúsundir Íslendinga hafa sótt Alfanámskeið, verið mjög ánægðir með

námskeiðið og mælt með því við aðra.

Námskeiðsgjaldið er 8500 kr. Alfahelgin verður 23.-25. okt. í

Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð. Greitt er sérstaklega fyrir þá ferð en

kostnaði haldið í lágmarki.



HVERNIG VIRKAR ALFA?
 
18:00 – 18:30 Matur - samfélag og spjall


Kennsla

18:30 - 19:00 Kennsla  um viðfangsefni kvöldsins.
 
Hverju Alfakvöldi fylgir rúmlega tuttugu mínútna kennsla á

myndbandi. Kennslurnar eru til þess gerðar að vekja upp fleiri spurningar

en þær svara. Þær fjalla um stóru málefnin tengd trúnni og

útskýra grunnatriði kristinnar trúar. Þetta eru spurningar eins og „Hver er

Jesús?“ og „Hvernig getum við átt trú?“.
 


Umræður

19:00 – 20:00 Umræður um viðfangsefni kvöldsins.
 
Þetta er hápunktur kvöldsins. Eftir kennsluna er nemendum

skipt í minni hópa þar sem hópstjóri leiðir umræðuna. Hér

getur fólk deilt hugsunum og vangaveltum um trúna og

lífið og heyrt hvað aðrir hafa að segja. Öllum er frjálst að taka

virkan þátt í umræðunum en það er líka í góðu lagi að hlusta

og velta hlutunum fyrir sér án þess að tjá sig.
HÉR má skrá sig á næsta Alfanámskeið sem hefst 22. september.

"Mjög góð upplifun í alla staði, góður og kærleiksríkur félagsskapur"

"Alveg yndislegt, beið alltaf eftir næsta þriðjudagskvöldi"

"Stórkostleg upplifun"

Umsjón með Alfa

Jón Norðfjörð