Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Bjargið alda borgin mín

1. Bjargið alda, borgin mín,
byrg þú mig í skjóli þín.
Heilsubrunnur öld og ár
er þitt dýra hjartasár.
Þvo mig hreinan, líknarlind,
lauga mig af hverri synd.
 
2. Heilög boðin, herra, þín
hefur brotið syndin mín.
Engin bót og engin tár
orka mín að græða sár.
Ónýt verk og ónýt trú,
enginn hjálpar nema þú.

3. Titrandi með tóma hönd
til þín, Guð, ég varpa önd,
nakinn kem ég, klæddu mig,
krankur er ég, græddu mig,
óhreinn kem ég, vei, ó, vei,
væg mér, herra, deyð mig ei.

4. Þegar æviþrautin dvín,
þegar lokast augun mín,
þegar ég við sælli sól
sé þinn dóms- og veldisstól:
Bjargið alda, borgin mín,
byrg mig þá í skjóli þín.

A. M. Toplady – Matthías Jochumsson

Hljóðdæmi