Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Fögur er foldin

1. Fögur er foldin,
heiður er Guðs himinn,
indæl pílagríms ævigöng.
Fram, fram um víða veröld og gistum
í Paradís með sigur söng.

2. Kynslóðir koma, kynslóðir fara,
allar sömu ævigöng.
Gleymist þó aldrei eilífa lagið
við pílagrímsins gleðisöng.

3. Fjárhirðum fluttu
fyrst þann söng Guðs englar,
unaðssöng, er aldrei þver,
friður á foldu, fagna þú, maður,
frelsari heimsins fæddur er.

B. S. Ingemann - Matthías Jochumsson.

Hljóðdæmi