Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Heims um ból

1. Heims um ból helg eru jól
signuð mær son Guðs ól.
Frelsun mannanna, frelsisins lind,
frumglæði ljóssins, en gjörvöll mannkind
:,: meinvill í myrkrunum lá. :,:

2. Heimi í hátíð er ný,
himneskt ljós lýsir ský.
Liggur í jötunni lávarður heims,
lifandi brunnur hins andlega seims,
:,: konungur lífs vors og ljóss. :,:

3. Heyra má himnum í frá, englasöng: ,,Allelújá”.
Friður á jörðu því faðirinn er
fús þeim að líkna, sem tilreiðir sér
:,: samastað syninum hjá. :,:

Sveinbjörn Egilsson.

Hljóðdæmi