Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Heyr börn þín Guð faðir

1. Heyr börn þín, Guð, faðir, sem biðja þig nú,
að blessuðum faðmi sig umvefjir þú.
Ó, seg: ,,Verið hugrökk, mín vernd ykkur ver,
ég veg ykkar greiði, ég stoð ykkar er”.
Þinn friður og náð þeirra farsæli ráð.

2. Þú eilífi Guðs son, er heims bættir hag,
ver hjá þessum brúðhjónum gestur í dag.
Ó, seg: ,,Ykkar heimilisvinur ég verð
og vörður og leiðtogi´ á ævinnar ferð”.
Þinn friður og náð þeirra farsæli ráð.

3. Það hjartnanna samfélag helgaðu þér
Guð heilagur andi, sem byrjað nú er.
Ó, seg: ,,Fetið blessuð hvert samleiðarspor
og sílifið blessunar indælast vor”.
Þinn friður og náð þeirra farsæli ráð.

4. Þú háttlofuð þrenning, lát hjúskaparstétt
með hvers konar dyggðum þig vegsama rétt.
Ó, seg: ,,Öllum hjónum, sem hjálp mína þrá
og hjörtun mér gefa, ég miskunn vil tjá”.
Þinn friður og náð þeirra farsæli ráð.

Helgi Hálfdánarson.

Hljóðdæmi