Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Í Jesú nafni áfram enn

1. Í Jesú nafni áfram enn
með ári nýju, kristnir menn,
það nafn um árs og ævispor
sé æðsta gleði og blessun vor.

2. Í nafni hans æ nýtt er ár,
því nafni´, er græðir öll vor sár,
í  nafni hans fá börnin blíð
Guðs blessun fyrst á ævitíð.

3. Í nafni hans sé starf og stríð,
er stendur hæst um sumartíð,
í  nafni hans sé lögð vor leið
um lífsins starfs og þroskaskeið.

4. Í nafni hans vér hljótum ró
er hulin jörð er vetrarsnjó,
í  nafni hans fær sofnað sætt
með silfurhárum ellin grætt.

5. Í Jesú nafni endar ár,
er oss er fæddur Drottinn hár,
í Jesú nafni lykti líf,
hans lausnarnafn þá sé vor hlíf.

6. Á hverri árs og ævitíð,
er allt að breytast fyrr og síð.
Þótt breytist allt, þó einn er jafn,
um eilífð ber hann Jesú nafn.

Valdemar Briem.

Hljóðdæmi