Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Þakklæti er eitthvað sem við veljum

Nov 1, 2015

Í Biblíunni erum við oft minnt á mikilvægi þess að vera þakklát. Þegar illa gengur eða okkur líður ekki vel getur það gjörbreytt hugarfari okkar að minna okkur á allt það sem við getum verið þakklát fyrir. Þakklætt viðmót er lykill að hamingju, þakklæti getur meira að segja bætt okkar líkamlegu heilsu. Í þessum mánuði ætlum við að fjalla um mikilvægi þakklætis, hvers vegna við ættum að vera þakklát og hvernig við getum tamið okkur það.