Bæn og fasta

Sep 27, 2026

Jesús talar um að biðja og fasta.


Við þurfum ekki að skilja nákvæmlega af hverju fasta virkar, Guð hefur sagt okkur að það beri ávöxt, það er næg ástæða til að gera það.


Bæn og fasta er ekki eitthvað sem við gerum bara við sérstök tilefni. Þetta er lífstíll, ryðmi í lífinu.


Við eflumst í bæninni eftir því sem við ástundum hana meira.

Snýst ekki um klukkustundirnar sem við eyðum, heldur þá venju að koma fram fyrir Guð reglulega, mæta honum og heyra frá honum. Opna hjarta sitt frammi fyrir Guði, biðja fyrir fólki og málefnum.


Bænin mótar okkur, styrkir og stillir okkur inn á það sem Guðs er.