Hvítasunnukirkjan Fíladelfía
Nýir Hörpustrengir

Í 100 ár hefur Hvítasunnukirkjan á Íslandi gefið út sálma til almenns söngs. Nú er komið að langþráðri endurútgáfu á Hörpustrengjum, en það verkefni hefur verið á teikniborðinu í rúm 30 ár.

Þessi heildar endurskoðun á sálmabókinni var sett af stað undir leiðsögn Árna Arinbjarnarsonar þáverandi tónlistarstjóra Fíladelfíusafnaðarins í Reykjavík. Henni lauk með veglegu framlagi Óskars Einarssonar, tónlistarstjóra Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu síðustu 29 árin. Hann setti upp nótna- og hljómasíður sálmanna sem nú birtast. Ásamt þeim tveimur hafa þeir Guðni Einarsson og Hafliði Kristinsson verið hluti af hópnum sem valdi sálmana, vann að undirbúningi texta og öflun upplýsinga um höfunda og þýðendur.

Í upphaflega hópnum, sem valdi sálmana er birtast í nýju útgáfunni, var einnig Hjálmar Guðnason frá Vestmannaeyjum. Mikið af textanum var tölvusett af Haraldi Halldórssyni, Guðrún Markúsdóttir las prófarkir, Aron Hinriksson hannaði viðmótið á heimasíðu kirkjunnar og Emil Hreiðar Björnsson hannaði grafík. Auk þessara hafa fleiri komið að þessu verki í lengri eða skemmri tíma og er þeim þakkað af heilum hug þeirra ómetanlega framlag.

Við biðjum þess að Hörpustrengir megi nú sem fyrr veita ómælda gleði þeim sem lært hafa að nota þennan fjársjóð sjáfum sér og öðrum til uppörvunar, huggunar, gleði og hvatningar. Það er von okkar að þessir sálmar megi halda áfram að leiða okkur fram fyrir Guð í tilbeiðslu og lofgjörð ásamt annarri tónlist og textum sem á síðari árum hafa auðgað kirkjuna með fjölbreytni í tækifærum til að breiða út fagnaðarerindið.

15. janúar 2021, Hafliði Kristinsson
Árni Arinbjarnarson
Óskar Einarsson
Sálmasöngur á góðri stundu