Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Þinn andi, Guð

1. Þinn andi, Guð, til Jesú Krists mig kalli
og komi mér á hina réttu leið,
svo ætíð ég að brjósti hans mér halli
í hverri freisting, efa, sorg og neyð.

2. Þinn andi, Guð minn, upp mig sífellt lýsi
með orði þínu, ljósi sannleikans,
í lífi' og dauða það mér veginn vísi
til vors hins þráða fyrirheitna lands.

3. Þinn andi, Guð, mitt endurfæði sinni
og í mér skapi hjarta nýtt og gott,
er aftur verði eftir líking þinni
og ávallt beri þinnar myndar vott.

4. Þinn andi, Guð, mitt helgi' og betri hjarta
og hreinsi það frá allri villu' og synd
og höll þar inni byggi dýra' og bjarta,
er blíða sífellt geymi Jesú mynd.

Valdimar Briem.

Hljóðdæmi