Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Sorgarnámskeið

Fíladelfía heldur í annað sinn sorgarnámskeið og samveru fyrir þá sem hafa misst.

Námskeiðið hefst 26. September kl. 19-21.
Hisst er vikulega í 8 vikur.

Námskeiðið er haldið fyrir þá sem hafa misst og eru að upplifa sorg og depurð. Á námskeiðinu verða skoðaðar tilfinningar sem einstaklingar upplifa þegar gengið er í gegnum sorgarferli. Unnið er í hóp þar sem þáttakendur deila tilfinningum, styrk og reynslu sem fylgir sorginni. Fullum trúnaði heitið.

Dóra Sólrún djákni mun leiða námskeiðið ásamt Siggu Stínu.

Stuðst er við bókina Til þín sem sem átt um sárt að binda eftir Karl Sigurbjörnsson.

Skráning fer fram á skrifstofu Fíladelfíu í síma 535-4700 eða á filadelfia@filadelfia.is

Recent

Archive

Categories

Tags