Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Hjálparstarf í Sýrlandi

Stuðningur við samtökin Öruggt skjól

Við viljum hvetja þá sem þess eiga kost að taka þátt í söfnun fyrir samtökin  'Öruggt skjól' sem styður fólk í Sýrlandi. Margir safna nú til að bjarga fólki eftir jarðskjálftana í Tyrklandi en lítil hjálp nær til Sýrlands vegna innri átaka og erfiðra samskipta út á við.
Samtökin hafa verið að hjálpa munaðarlausum börnum, ekkjum og illa stöddum í stórri borg í Sýrlandi undanfarin fjögur ár. Þetta fólk býr stutt frá upptökum skjálftans í leigðum húsum, sem flest hrundu. Hópurinn bjargaðist út á götu en er mjög illa staddur.
Starfsemin er borin uppi af fámennum hópi hér heima og nokkrum þarlendum hetjum. Þetta gæti gæti einmitt verið staður fyrir þinn stuðning og þátttöku í að styðja fólk í Sýrlandi.
Starfið heitir 'Öruggt skjól ' (Safe Shelter) og er með reikning í Arionbanka: Kennitala: 610319-1490 og  reikningsnúmer: 0301-26-006069

Recent

Archive

 2024

Categories

Tags